Kristjana Guðlaugsdóttir

Reykjanesbær - Reykjavík og nágrenni

Markmið mitt er að þroskast og vaxa, bæði persónulega og faglega, í gegnum áskoranir lífsins – og að nota hvert tækifæri til þess <3

Ég er ljósaperan í persónuleikaprófunum og þúsundþjalasmiður skrifstofunnar. Enda á ég ekkert erfitt með að eiga frumkvæði og leysa málin, því það er mitt lífsmottó og „second nature“ að hugsa í lausnum. Stundum leysi ég mál fjölskyldu og vina þegar þeim vantaði bara öxl og eyra ... Því það hefur líka fylgt mér að geta hlustað á aðra og ég hef verið snögg að sjá heildarmyndina. Samskipti eru mér lífsnauðsynleg, rétt eins og húsaskjól og fæða!

Ég hef verið heppin að fá að takast á við krefjandi verkefni, bæði í einkalífi og í starfi – sem hafa gefið mér aukinn þroska og fleiri verkfæri til að nota við daglegt líf.

Í tómstundum nýt ég þess að ferðast og kynnast fólki og menningu þess. Lestur góðra bóka og öll samvera í gegnum matargerð, góðgerðastarf, gleði og útivist í góðra vina hópi er mín næring í daglegu lífi.

  • Work
    • Mannauður - Human relation
  • Education
    • BSc í viðskiptum frá Háskólanum á Birfröst - BSc in business, HRM ...
    • Alþjóðleg viðsipti - Working on my Masters in International Busienss