Eyrún Elly Valsdóttir
Project Manager, Social Media Manager, and Consultant in Reykjavík, Iceland
Ásta Lóa My Madslund:
„Eyrún prófarkalas BA-ritgerð í íslensku sem öðru máli fyrir mig og gerði það vandlega og ítarlega með skýrar og uppbyggjandi athugasemdir. Leiðrétti málfar og stafsetningu vel og gaumgæfilega.“
Viktor Sveinsson, FARVEL:
„Eyrún er snögg, skilvirk, nákvæm og úrræðagóð í yfirlestri og textabótum.“
Auður Geirsdóttir viðskiptastjóri:
„Í starfi okkar saman sýndi Eyrún nákvæmni og vandvirkni í yfirferð á skjölum og skýrslum. Þegar Eyrún tók að sér verkefni kláraði hún það með metnaði og dirfsku.“
Gunnar Egilsson lögfræðingur:
„Eyrún hefur um árabil aðstoðað Nordik lögfræðiþjónustu við prófarkarlestur, jafnt dómskjala sem annarra skjala. Hún vinnur hratt og örugglega og oft fjöldi leiðréttinga sem skila sér til okkar, þrátt fyrir að fleiri en einn starfsmaður hafi þegar lúslesið skjalið.“
Rósa Ívarsdóttir viðskiptafræðingur:
„Fyrir utan fagmennsku og fágun er Eyrún þægileg og afslöppuð í samskiptum og sinnir verkefnum sínum af alúð og virðingu, hversu stór eða smá þau eru.“
------
Gæðatýpa og yfirlestrarhetja og ég hef mikla reynslu af yfirlestri ýmis konar texta á íslensku.
Yfirleitt er yfirferðin á rafrænu formi en einnig leiðrétti ég útprentaða próförk með hefðbundinnitáknanotkun.
Dæmi um verkefni sem ég hef tekið að mér:
- Ritgerðir á háskólastigi (t.d. B.A.-ritgerðir, M.A.-ritgerðir, doktorsritgerðir)
- Fræðitexti og greinar í ritrýndum útgefnum tímaritum
- Nytjatexti (auglýsingabæklingar o.þ.h.)
- Veftexti (content) ýmiskonar
- Skýrslur, greinargerðir og minnisblöð f. ríkisstofnanir
- Útgefnar bækur og kennslubækur
- Kennsluefni (glósur og glærur)
- Bókadómar til útgáfu
- Fundargerðir
- Fjölmiðlaefni (pistla fyrir útvarp, blaðagreinar)
Vinsamlegast hafið samband til að fá upplýsingar um verð og til að taka frá tíma í prófarka- og handritalestur.