Félag lesblindra á Íslandi
Lesblinda (lestrarörðugleikar áður kölluð torlæsi, alþjóðaheitið er dyslexia) er erfiðleikar með rituð orð, bæði í lestri og stafsetningu.
Það eru til yfir 200 tegundir lesblindu, orsakir lesblindu eru því jafn margar. Orsök lesblindu getur til dæmis verið veikleiki af taugafræðilegum toga eða frávik í afmarkaðri heilastarfsemi. Ónefndar rannsóknir gefa vísbendingu um að þegar lesblindir vinna úr upplýsingum nota þeir annan hluta heilans en þeir sem eru ekki lesblindir.
Lesblinda tengist ekki greind og er ekki sjúkdómur, hún lýsir sér sem erfiðleikar við lestur, einnig geta aðrir erfileikar fylgt einsog erfiðleikar við stafsetningu, stærðfræði o.fl.
Lesblinda er skilgreind sem sértækar þroskaraskanir sem tengst lestri. Í íslenskri þýðingu ICD-10 flokkunarkerfisins, sem gefið er út af Alþjóða heilbrigðisstofnuninni (WHO) eru sértækar þroskaraskanir á námshæfni skilgreindar sem „Sértækar þroskaraskanir á námshæfni geta tengst grunngreinum námsins, lestri, skrift, stafsetningu og stærðfræði.