Sigurður Bollason
Equity Shareholder/General Manager in Luxembourg
Sigurður Bollason er íslenskur fjárfestir og smásali. Segja má að hann hafi alist upp í verslun ömmu sinnar og afa og hefur varið nær öllu sínu lífi í smásölurekstur.
Sigurður tók þátt í uppbyggingu NTC á tíunda áratug síðustu aldar. Hann opnaði svo Karen Millen verslun á Íslandi árið 1999. Öðlaðist hann mikla trú á félaginu sem varð til þess að árið 2001 keypti Sigurður, ásamt hópi fjárfesta, 49% hlut í Karen Millen UK. Sigurður starfaði sem International Director og opnaði um 60 Karen Millen verslanir um allan heim. 2004 var fjárfestingin seld með miklum hagnaði.
Árið 2004 keypti Sigurður, ásamt hópi fjárfesta, stóran hlut í Shoe Studio Group, sem var leiðandi í skósölu í Bretlandi. Hann kynntist og hóf samstarf við Don McCarthy. Þarna varð til mikill vinskapur. Árið 2005 keypti Shoe Studio Group, undir handleiðslu þeirra Sigurðar og Dons, Rubicon Retail Ltd., sem átti meðal annars merkið Warehouse. Við þessi viðskipti varð til fyrirtæki með um 500 milljón punda veltu.
Sigurður er fjárfestir sem í ríkulegum mæli hefur fært sig úr smásölu yfir í fjárfestingar í fjárfestingarbönkum, tryggingafélögum, byggingariðnaði og kreditkortaiðnaði, svo dæmi séu nefnt.
Sigurður hefur búið í Bretlandi og í Lúxemborg frá tvítugsaldri. Hann er kvæntur Nönnu Björk Ásgrímsdóttur, lögfræðingi LLM, og eiga þau þrjú börn.