Svavar Ragnarsson
Christchurch, New Zealand
Undanfarin 15 ár hef ég búið út um alla heimsbyggð, s.s. í Englandi, Þýskalandi, Ástralíu, Japan, Bandaríkjunum, Kína og auðvitað eitthvað á Íslandi líka. Bakgrunnur minn er aðalega í tölvugeiranum og vann t.d. hjá CCP Games á Íslandi. Núverið er ég mikið í Social Media og prufa mikið af nýjum vefþjónustum og öppum – og skrifa stundum t.d. um það á simon.is.
Afskaplega hamingjusamlega giftur og bý með konu minni og ungri dóttur í Christchurch í Nýja Sjálandi. Þar vinn ég sem ráðgjafi hjá Effectus.
Þegar ég er ekki yfir ferðatölvunni eða farsímanum þá stunda ég það að horfa að góðar heimildarmyndir, lesa áhugaverðabækur eða slappa af yfir góðri bíómynd (og einstaka sjónvarpsseríu). Ljósmyndun er líkast til eitt mitt helsta áhugamál samt og hefur Instagram tekið dável af mínum tíma undanfarið. Vonandi mun nýtt umhverfi samt gera mér og fjölskyldunni kleift að fara aftur í gönguferði um fjöll og fyrnindi.
Svo er alltaf gaman að hitta nýtt fólk. Ég er mikið á Twitter (@samrag) og svo má finna mig á flestum stöðum á netinu ef þið kíkið á ensku útgáfuna hér: about.me/samrag
Endilega verið í bandi.