VIN

Vinafélag Íslands og Niðurlanda var stofnað 1982 af Íslendingum búsettum í Hollandi, mökum þeirra og fleiri Íslandsvinum. Félagið hefur það markmið að stuðla að menningarlegum tengslum á milli Íslands og Hollands og styrkja innbyrðis bönd Íslendinga í Hollandi. Starfsemin snýst núna árlega um að skipuleggja jólaskemmtun, þorrablót og 17 júni samkomu fyrir meðlimi og aðra sem hafa áhuga á. Aðalfundur er haldin á hverju hausti. Vefsíðan og facebooksíðan eru málgögn og samskiptamiðilar félagsins.